Monday, November 14, 2005
Myndir frá Lindu Rún
Þessar myndir sendi Linda Rún, góð viðbót við myndasafnið, kærar þakkir.
Endilega sendið inn fleiri velheppnaðar myndir á endurfundir@hotmail.com :)





|
Endilega sendið inn fleiri velheppnaðar myndir á endurfundir@hotmail.com :)





Friday, November 11, 2005
Myndirnar
Fyrstu Endurfundir '79 árgangs Öldutúnsskóla lukkuðust með eindæmum vel. Meira en helmingur árgangsins mætti á Kránna á skemmti sér hið besta. Þetta var stórkostlegt kvöld og bera myndirnar þess glöggt merki. Það voru ýmsir sem voru mjög duglegir við myndatökur og eru myndasmiðir hvattir til að senda vel heppnaðar myndir á endurfundir@hotmail.com
Njótið vel og takk fyrir síðast :)





|
|
|
|
|
|
Njótið vel og takk fyrir síðast :)





Wednesday, November 09, 2005
|Tuesday, November 08, 2005
|Friday, November 04, 2005
Á morgun...

Stemmningin magnast eins og glöggt má sjá. Hinar fornu eikartunnur sem hafa að geyma ljúffengan ReUnion-Lagerinn hafa verið færðar úr dýflissum Kráarinnar og glaðir matreiðslusveinar keppast um að útbúa viðeigandi meðlæti. Það stefnir allt í mikla gleði annað kvöld enda miklir gleðiboltar væntanlegir, enn berast tilkynningar um þátttöku og stefnir í fimmtíu prósent mætingu. Dyr Kráarinnar opna klukkan tuttugu og minnum við á þátttökugjaldið sem greiðist við komu - ISK 1.500.-
Kvöldið á morgun verður okkar og höfum við ærna ástæðu til að skála eftir tíu ára aðskilnað.
Sjáumst hress á Kránni - NUNC EST BIBENDUM!
Tuesday, November 01, 2005
Skráning og myndir
Það styttist óðum í gleðina og hafa fjörtíuogfimm skráð þátttöku sína. Það er alls ekki of seint að skrá sig og hvetjum við alla þá sem ætla sér að mæta að senda okkur línu á endurfundir@hotmail.com
Valdi hefur fengið sendar myndir úr hinum ýmsu áttum og verður það afar áhugavert að berja þær augum. Ef þið lumið á góðum myndum þá endilega sendið honum þær á valdimarks@ru.is
|
Valdi hefur fengið sendar myndir úr hinum ýmsu áttum og verður það afar áhugavert að berja þær augum. Ef þið lumið á góðum myndum þá endilega sendið honum þær á valdimarks@ru.is
Thursday, October 27, 2005
Býflugupistill

Já ég læt ekki á mér standa...enda hef ég ekki tól til þess, svo að hér kemur einn lítill pistill eins og óskað var eftir.
Vá, mér finnst eins og ég hafi ekki verið á sama stað og Hlynur er að lýsa! Við stelpurnar vorum að flýta okkur svo mikið að vera fullorðnar að við byrjuðum að reykja í 8. bekk og duttum í það fyrst um áramótin fyrir fermingu, skemmtilegasta fyllerý ever. Það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað hefur ræst úr okkur miðað við hvað við vorum uppteknar af því að vera til vandræða heima fyrir. Held samt að ég hafi verið skást af þeim, mér tókst allavega aldrei að læra að reykja...
Það sem skilur þarna á milli er náttúrulega það að hann Hlynur var í íþróttum. Við vorum sko EKKI í íþróttum. Svona þegar aldurinn færist yfir þá hefði það verið ansi hagstætt....ehhh! Enda er maður nú búinn að reyna ýmislegt til að öðlast íþróttamannslegt útlit án þess að þurfa að stunda íþróttir, svo sem Slendertone Flex magaþjálfunartækið, rafbylgjur, Herbalife, kolvetnalaust fæði...já það hefði nú borgað sig að sparka í tuðru kannski.
En jú auðvitað er þetta falleg minning sem hann Hlynur er að lýsa. Það var ansi mikið stuð á þessum árum. Svei mér þá, ég held samt að ég sé bara farin að gleyma ansi miklu...ég á pottþétt ekki eftir að muna nöfnin á mörgum ykkar! Man samt alveg nöfnin á þeim sem ég var skotin í.....gússí!
Ég var í nemendaráði með Eyva og Hlyn minnir mig og ég sá um sjoppuna. Ekki gaf reksturinn af sér mikinn ágóða þetta árið enda ósjaldan læðst inn í sjoppuna í frímínútum og fengið sér smá sætindi J. Við Eyvi vorum dáldið dugleg í því sko. Hann var alltaf að reyna að sannfæra mig um að það væri allt í lagi að taka eitt enn, það myndi enginn taka eftir því! Ég var því voðalega lítið dansandi á þessum böllum, var aðallega að afgreiða í sjoppunni.
Ég hlakka mjög mikið til að hitta ykkur þann 5. nóvember. Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta enda veit ég að það verður alveg ógeðslega gaman! Við stelpurnar ætlum að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins, dekra pínulítið við okkur og skála saman. Sjáumst hress og kát!!!
Kær kveðja, Fjóla Býfluga.

































